Skjal annast þýðingar milli flestra tungumála heims, hvort sem um er að ræða markaðsefni, tæknitexta, viðskiptagögn eða annað. Við höfum á okkar snærum fjölda þýðenda með ólíka menntun og bakgrunn og bjóðum bæði upp á almennar þýðingar og löggiltar skjalaþýðingar.
Hjá Skjali er lagður metnaður í nákvæman prófarkalestur og samræmt yfirbragð texta. Auk þess að leiðrétta mál- og ritvillur gætir prófarkalesarinn að samræmi, skerpir á óskýru orðalagi og lagfærir hnökra á stíl.
Skjal tekur að sér textagerð af öllu tagi, jafnt á íslensku sem öðrum tungumálum. Við gerð vel heppnaðs texta hafa textasmiðir Skjals að leiðarljósi að skrifa hnitmiðaðan, aðgengilegan og auðlesinn texta sem höfðar beint til markhópsins hverju sinni.
Opið 09:00–16:00
alla virka daga
Sími 530 7300
skjal@skjal.is
Skjal er öflug þýðingastofa sem býr að áralangri reynslu af þýðingum, prófarkalestri og textagerð fyrir stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga. Við leggjum áherslu á að vera lipur og sveigjanleg í samskiptum við viðskiptavini og vinna öll störf í sem bestu samræmi við kröfur þeirra og óskir.
Skjal vinnur í samræmi við viðurkennda verkferla og gæðastaðla og er í samstarfi við fjölda þýðingastofa og undirverktaka um allan heim.
Allar fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið skjal@skjal.is og leitast starfsfólk við að svara eins fljótt og auðið er. Farið er með öll gögn sem trúnaðarmál.
